Ég nota tækni til að búa til hluti sem mér finnst skemmtilegir, gagnlegir og gefa mér orku.
Ég hef alltaf haft gaman af því að finna einfaldari leiðir í gegnum vesen. Hvort sem það er í vinnu, heimilislífi, samhæfingu, utanumhaldi eða einhverju litlu daglegu rugli sem enginn hefur nennt að laga almennilega.
Gott vibe er safn af lausnum sem byrja þannig.
- Með einhverju sem mætti virka betur.
- Einhverju sem fólk er að gera, en finnst óþarflega þungt.
- Einhverju sem þarf ekki endilega stórt kerfi, bara skýrari hugsun og betra flæði.
Ég nýti gervigreindarforritun til að komast hraðar frá hugmynd yfir í eitthvað nothæft. En tæknin er ekki aðalatriðið.
Aðalatriðið er að búa til eitthvað sem fólk nennir í alvörunni að nota.
Þjónusta í boði
Ég býð fyrirtækjum upp á hands-on námskeið í því hvernig þau geta nýtt sér þessa tækni í alvörunni. Ekki sem einhverja loðna kynningu á því hvað gæti mögulega verið hægt, heldur þannig að ég komi inn og við notum tæknina saman til að leysa raunverulegt vandamál.
Hugmyndin er einföld: við tökum fyrir eitthvað sem fyrirtækið er í dag fast með, kerfi, ferli eða lausn sem er óþarflega leiðinleg, óskilvirk, ljót eða dýr, og í stað þess að tala um hvernig mætti kannski bæta það einhvern tímann, byggjum við saman nýja og miklu nothæfari útgáfu.
Mér finnst það miklu meira virði en að tala bara um möguleikana. Þegar fólk sér með eigin augum að það er hægt að skipta út gömlu lausninni fyrir eitthvað sem passar betur við þeirra vinnuflæði, þeirra fólk og þeirra þarfir, þá fyrst verður ljóst hvað þessi tækni getur gert. Og í mörgum tilfellum getur það líka þýtt minni kostnað, minni pirring og miklu betri nýtingu á tíma.






Vandamálið
Þegar einhver sem þér þykir vænt um þarf aðstoð ætti utanumhaldið ekki að vera það sem reynir mest á. En það verður það alltof oft. Skilaboð dreifast, ábyrgðin verður óljós og hlutir detta á milli einfaldlega vegna þess að enginn vissi hver átti að gera hvað eða hvenær.
Innsýnin
Vandamálið er sjaldnast læknisfræðilegt. Það er mannlegt. Fjölskyldur, vinir og aðrir sem vilja hjálpa þurfa leið til að halda utan um hlutina saman á hátt sem líður eðlilega, ekki eins og þau séu komin inn í þungt stofnanakerfi.
Lausnin
Tól fyrir umönnunarhringi, ættingja, vini og nágranna sem halda utan um umönnunina saman. Hannað fyrir þann raunverulega og oft flókna veruleika sem fylgir því þegar margir þurfa að láta hlutina ganga upp í sameiningu.
Meira samhengi
Umönnunarkerfi eru til í þúsundatali. En það að umonnun.is skyldi hafa verið laust lén, og að nánast ekkert venjulegt fólk hafi heyrt um þær lausnir sem þegar eru til á þessu sviði, segir sitt. Þetta þarf að nálgast frá öðru sjónarhorni, frá sjónarhorni fólksins sem er í raun og veru að reyna að halda utan um umönnunina, vera til staðar og láta hlutina ganga upp.
Hver kemur hvenær. Hvað hefur verið gert. Hverju gleymdist að segja frá. Hlutirnir sem detta á milli, ekki vegna þess að engum sé ekki sama, heldur vegna þess að það vantar góða leið til að vera samstíga.
Vandamálið
Golfhópar búa til flókin kerfi af keppnum, reglum og hefðum yfir árin, en halda utan um allt í hópspjöllum og töflureiknum. Þegar sá eini sem vissi hvernig allt virkaði hættir, fer þekkingin með honum.
Innsýnin
Þetta snýst ekki bara um stigatöflu. Inni í hverjum hópi er menning, uppbygging og samfélag sem á skilið betri stað. Og þegar fólk fær val um hvernig kerfið þróast, í gegnum hugmyndabanka þar sem það leggur til og kýs, verður það hluti af verkefninu, ekki bara notendur.
Lausnin
Vettvangur sem gefur golfhópum raunverulegt heimili: live stigagjöf holu-fyrir-holu, sjálfvirk stigatafla með stillanlegum reglum, tölfræði yfir tímann, veðurspá, og hugmyndabanki þar sem hópurinn sjálfur stýrir hvert kerfið fer.
Sagan okkar er hugmynd að lausn sem hjálpar fjölskyldum að byggja upp lífssögu frá fyrstu árum og láta hana vaxa með manneskjunni í gegnum allt lífið.
Þetta er ekki bara "ævisaga" sem er skrifuð eftir á. Þetta er saga sem byrjar snemma, byggist upp jafnt og þétt og verður síðar dýrmætur hluti af samhengi, minningum og umönnun.
Fimman er ekki bara trúbador, heldur líka lifandi dæmi um hvernig tæknin getur bætt upplifun, einfaldað bókanir og gert þjónustuna bæði skýrari og skemmtilegri.
Kosningakerfið
Áhorfendur kjósa lög í rauntíma. Stemningin byrjar fyrr, þátttakan verður meiri og lagavalið færist í átt að því sem virkar í raun, í stað þess að kvöldið fari í handahófskenndar beiðnir og vesen.
Bókunarkerfi með innbyggðri sjálfsafgreiðslureiknivél
Bókunarferlið verður skýrara, verðlagningin gagnsærri og það þarf ekki að fara í gegnum endalaust fram og til baka. Þetta sýnir hvernig tæknin getur einfaldað bæði söluferlið og þjónustuna sjálfa.
PlayDateSync er byggt út frá raunverulegri þörf fyrir betri samhæfingu milli heimila. Þegar börn fara á milli húsa skapast oft alls konar grá svæði í kringum skjátíma, reglur og sanngirni. Þetta er tilraun til að búa til skýrari og nothæfari leið til að halda utan um það.
5 metra breitt, 5 metra djúpt og 3,3 metra hátt skrímsli sem getur hýst golfhermi, bíósal, veislurými eða nánast hvað sem er. Hugmyndin er ekki bara að eiga uppblásanlegt tjald, heldur að skapa sveigjanlegt upplifunarrými sem hægt er að nýta á ótrúlega marga vegu.
Alveg að verða tilbúið
Í verkefnavinnu lenda fyrirtæki oft í því að nota mörg tól sem tala illa saman. Upplýsingar dreifast, utanumhald verður óþarflega þungt og framkvæmdin flóknari en hún þyrfti að vera. GoLivePlaybook byggir á reynslu minni úr verkefna- og vörutengdu umhverfi og þeirri trú að með tækninni sé hægt að búa til umhverfi sem passar raunverulega við fyrirtækið sjálft, ekki bara troða öllum inn í sama mótið.
Í vinnslu
Vaktirnar eru regnhlíf yfir nokkrar litlar lausnir tengdar vöktum og sameiginlegu skipulagi. Fyrst kemur Krakkavaktin, á eftir 3ja vaktin og síðan hugmyndin um Fyrsta vakt krakkanna þar sem börn safna stigum fyrir þátttöku í heimilisstarfinu. Þetta er á frumstigi en hugmyndin stendur á traustum grunni.
Hugmyndin á bak við kosningakerfið nær langt út fyrir tónlist. CrowdSync er víðari sýn á það hvernig hópar og stjórnendur geta syncað sig í rauntíma um val, flæði og orku. Fimman kosningakerfið er fyrsta raunverulega implementationið af þessari hugsun í lifandi umhverfi.
Ég er að þróa fjölskyldudagatalslausn sem les inn tölvupósta frá skóla, tómstundum og öðrum aðilum með hjálp gervigreindar og breytir þeim í viðburði og verkefni. Inni í því er líka verkefnalisti fyrir krakkana þar sem þau safna stigum. Þetta er enn í þróun, en ég er þegar byrjaður að nota þetta heima.
Samtalið skiptir öllu
Besta útgáfan af því sem ég byggi verður aldrei til frá mér einum. Mín reynsla gefur mér byrjunarpunktinn, þessa tilfinningu fyrir því að eitthvað ætti að vera betra. En fólkið sem lifir með þessum veruleika á hverjum degi sér hluti sem ég sé ekki.
Þess vegna eru viðbrögð ekki aukaatriði, heldur hluti af því sem skiptir mestu máli. Og þess vegna hef ég yfirleitt meiri áhuga á góðu samtali en á því að hafa rétt fyrir mér. Ef eitthvað hér kveikir eitthvað hjá þér, eða ef þú sérð þetta öðruvísi, þá langar mig að heyra það.